Kynningarfundur um stórfellda uppbyggingu íbúða fyrir tekju- og eignaminni
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, hefur boðað til fundar á morgun, þriðjudaginn 20. júní, kl. 12, þar sem kynnt verða uppbyggingaráform íbúða fyrir tekju- og eignaminni. Á fundinum verður tilkynnt um úthlutun stofnframlaga frá ríki og sveitarfélögum.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnir úthlutun stofnframlaga og stóraukið fjármagn stjórnvalda til byggingar íbúða á viðráðanlegu verði. Fundurinn fer fram í starfsstöð HMS í Borgartúni 21 í Reykjavík en honum verður einnig streymt beint á hms.is/streymi.
Dagskrá fundarins:
11:45-12:00 Húsið opnar. Léttar veitingar í boði.
12:05-12:30 Leiðin að jafnvægi í húsnæðismálum - Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
12:30-12:40 Uppbyggingaráform sveitarfélaga - Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
12:40-12:50 Fjölgun leiguíbúða á viðráðanlegu verði - Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri lánasviðs hjá HMS
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.