KS-Deildin fer af stað

Við undirskrift samstarfssamnings 2008

KS-Deildin 2010 fer af stað með úrtöku um 6 laus sæti í deildinni  miðvikudagskvöldið 27 janúar en að venju fer keppnin fram í  Svaðastaðahöllinni. Mikil spenna er fyrir deildinni þennan veturinn enda hefur deildin með traustum stuðningi KS tryggt sér sess sem einn af stóru viðburðunum í vetrarhestamensku á Norðurlandi.
Keppt verður í 4-g og 5-g og gildir samanlagður árangur. Skráning fyrir föstudagskvöldið 22 janúar hjá Eyþóri í síma 842-5240.

Nú þegar eiga tryggt sæti í deildinni þau: Þórarinn Eymundsson, Mette Manseth, Ísólfur Líndal Þórisson, Bjarni Jónasson, Björn Jónsson, Magnús Bragi Magnússon, Ólafur Magnússon, Þorbjörn Mattíasson, Ragnar Stefánsson, Sölvi Sigurðsson, Stefán Friðgeirsson og Erlingur Ingvarsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir