Kjúklingalæri í ostasósu
Þau Jónína Ögn Jóhannesdóttir og Sigurður Birgir Jónsson á Hvammstanga áttu uppskriftir vikunnar í Feyki haustið 2010. Buðu þau upp á kjúklingalæri í ostasósu og hindberjaís í skel.
Kjúklingalæri í ostasósu
- 4 stk kjúklingalæri snöggsteikt í smjöri
- salt
- ½ askja sveppir, létt steiktir
- 1 dós sveppa smurostur
- ½ stk piparostur
- 1 lítil dós grænn aspas
- ½ dós ferskjur
- matvinnslurjómi
Hrærið saman í potti ostum, þynnið út með rjómanum, síðan ferskjur og að síðustu blanda létt steiktum sveppum og aspasnum og bætt úti.
Látið kjúklingalærin í eldfast mót og hellið ostasósunni yfir, bakið í 35-40 mín við 180-200°C
Borið fram með fersku salati
Hindberjaís í skel
- 6 egg
- 100 gr sykur
- ½-1 poki frosin hindber mixuð
- 1 lítri rjómi
Egg og sykur vel þeytt, síðan er mixuð hindber sett saman við stífþeyttum rjómanum
Skelin
150-200 gr suðusúkkulaði brætt og breitt í botn og hliðar á springformi. Í botninn má setja ávexti t.d. jarðarber, kíví, perur. Síðan er ísblöndunni hellt yfir og allt fryst.
Sósa
- Bræðið saman 2 stk mars, 1 stk karamellufyllt súkkulaði.
- Þynnt út með rjóma.
Verði ykkur að góðu!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.