Júlíveðrið svipað og verið hefur með aðeins fleiri rakadögum og pínu minni hita
Á fund Veðurklúbbs Dalbæjar mættu í gær 27. júní, og spáðu fyrir júlíveðrinu, þau Haukur Haraldsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Magnús Gunnlaugsson, Jón Garðarsson, Guðrún Ágústa Ólafsdóttir, Ásgeir Stefánsson, Sigríður Björk Hafstað, Guðrún Skarphéðinsdóttir, Þorgerður Sveinbjarnardóttir, Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, Kristján Loftur Jónsson og Þóra Jóna Finnsdóttir.
„Eftir dásamlegan júnímánuð hérna á stór Dalvíkursvæðinu þá var það helst sólbruni og almennt hitaslen eftir undanförnu sjóðheitu sólardagana sem truflaði fundarstörf, en við redduðum því að vanda með svaladrykkjum til að virkja og væta betur raddböndin svo allir gætu komið sínu til skila,“ segir í fundargerð klúbbsins.
„Við veltum fyrir okkur hvort undanfarin júní hafi mögulega verið óvenju þurr og sólríkur, en þess ber að geta að það var Skagfirðingur sem velti þeim spurningum upp og því ekki endilega víst að hann þekki svona veðurblíðu úr sínum gömlu heimahögum frekar en Mýramenn til dæmis. En nú skal ég reyna að hætta að stríða fólki af öðrum landsvæðum, enda mögulega engin húmor í veðurumræðum á sumum landshlutum,“ segir ennfremur í fundargerðinni og með fylgir svipmikill broskall.
„Komum okkur þá að veðurspá klúbbsins, en þrátt fyrir óvenju fjölmennan fund núna og fleiri leiðir til veðurspár en oft áður þá voru félagar samt að langmestu leyti sammála um komandi júlí veður, nefnilega að mestu leyti svipaðan júlí og júní var en kannski með aðeins fleiri rakadögum og pínu minni hita hérna hjá okkur heldur en júní veðrið veitti.
En að þessu sinni fengum við í viðbót við lestur í ný tungl, tilfinningar og fleira, spá frá annars konar spákonu sem við vonum að komi áfram á fundi með sínar upplýsingar.“
Að venju er hvatt í bundnu máli:
Hvernig sem að komið er
fyrir sumum svæðum.
Þá ylur um mig allan fer
svo svipta þarf mig klæðum.
Höf. Bjór.
Komið nú hingað og kíkið
í dásemdar dalanna ríkið.
Það er ekki galið
þó um það þið talið
og dýrðinni hérna þið flíkið.
Höf. Bjór.
Í lok skeytis spámanna er hvatning til lesenda um að þeim verði sendar skemmtilegar veðurvísur sem hægt sé að nota með fundargerðunum „svo hirðskáldið sé ekki eitt um það og síkreistandi úr sér einhvern leirburð,“ eins og þar segir. Hægt er að hafa samband á Facebook-síðu Veðurklúbbs Dalbæjar eða á netfangið bergurthj15@gmail.com.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.