Jón Bjarnason kveður rússneska sendiherrann

Jón þakkar Victori fyrir fórnfúst starf.

Rússneski sendiherrann Hr. Victor I. Tatarintsev er nú á förum frá Íslandi og tekur við öðrum verkefnum í heimalandi sínu sem m.a. felast í því að sinna málefnum Íslands. Í kveðjuhófi sendiherranns þakkaði Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Victor I. Tatarintsev fyrir  fórnfúst starf við að efla og auka samskipti Íslands og Rússlands.

Alla tíð sína sem sendiherra á Íslandi hefur Victor I. Tatarintsev verið ötull við að greiða götur Íslendinga og íslenskra stjórnvalda í samskiptum við Rússland.  Margt væri  hægt að nefna, en sem nýlegt dæmi  er hægt að upplýsa að rússnesk og íslensk yfirvöld munu um helgina  undirrita samninga um heilbrigðisskoðun og útflutningsleyfi  á íslenskum landbúnaðarvörum til Rússlands.  Rússlandsmarkaður er vaxandi markaður og mikilvægur vegna útflutnings á íslensku kjöti og kjötafurðum.  Victor I. Tatarintsev hefur ásamt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Matvælastofnun og landssamtökum sláturleyfishafa lagt mikla vinnu í  að opna þennan markað og veitt ómetanlega hjálp við að fá tilheyrandi leyfi frá til þess bærum yfirvöldum í Rússlandi.

Jón þakkaði Victori fyrir störf sín hér fyrir sína hönd og ráðuneytisins og sagði að samstarfið við hann hafi verið sérlega ánægjulegt og hans yrði sárt saknað.

- Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir