Jólagleði á Króknum um helgina

jolatre_09 (15)Um síðustu helgi voru jólaljósin tendrum á jólatrénu á Sauðárkróki í mikilli rjómablíðu. Fjöldi manns fór í bæinn og naut aðventustemningar í gamla bænum.

Aðalgatan og nyrsti hluti Skagfirðingabrautar var lokuð bílaumferð og myndaðist skemmtileg göngugötustemning í anda fyrri tíma. Ýmislegt var í boði fyrir fólk en hátindurinn hjá smáfólkinu var að sjálfsögðu koma jólasveinanna þar sem þeir gáfu mandarínur og dönsuðu í kringum jólatréð. Ljósmyndari Feykis var á staðnum og myndaði stemninguna.

palli@feykir.is

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir