Jóhann Björn og Ísak Óli keppa á Smáþjóðaleikunum í sumar
Þrír Skagfirðingar munu fara með landsliði Íslands í frjálsíþróttum á Smáþjóðaleikana sem fram fara í Svartfjallalandi 27. maí til 1. júní í sumar. Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að í liðinu séu 22 íþróttamenn, þrettán konur og níu karlar.
Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ valdi þá Ísak Óli Traustason, sem keppir í 110m grindahlaupi, langstökki og boðhlaupi, og Jóhann Björn Sigurbjörnsson, sem keppir í 100m og 200m hlaupum og boðhlaupi og svo er Sigurður Arnar Björnsson þjálfari Frjálsíþróttadeildar Tindastóls í þjálfarateymi liðsins.
Á Smáþjóðaleikunum eiga keppnisrétt Evrópuþjóðir með íbúatölu undir einni milljón og hafa þeir verið haldnir annað hvert ár frá 1985, segir á Tindastóll.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.