Íþróttamaður USVH kjörinn í dag

usvh_logoÍ dag kemur í ljós hver hlýtur titilinn Íþróttamaður ársins hjá USVH en það verður við hátíðlega athöfn í íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga klukkan 18:00.

Allir þeir sem eru tilnefndir, sem og íbúar Húnaþings vestra eru hvattir til að mæta og taka þátt í stemningunni en athöfn þessi  hefur skapað sér verðugan sess í menningu héraðsins.

Eftirtaldir einstaklingar eru tilnefndir til íþróttamanns USVH árið 2009 

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir fyrir körfubolta
Helga Margrét Þorsteinsdóttir fyrir frjálsar íþróttir
Helga Una Björnsdóttir fyrir hestaíþróttir
Ísólfur Líndal Þórisson fyrir hestaíþróttir
Ólafur Einar Skúlason fyrir frjálsar íþróttir
Tryggvi Björnsson fyrir hestaíþróttir

Þess má geta til gamans að Helga Margrét er tilnefnd sem íþróttamaður ársins hjá samtökum íþróttafréttamanna en úrslit þar ráðast 5. janúar n.k.

palli@feykir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir