Hver á sér fegra föðurland á laugardaginn?
Þann 1. desember verður öld liðin frá því að Ísland fékk fullveldi frá Danakonungi og verður þess minnst í tali og tónum í Menningarhúsinu Miðgarði nk. laugardagskvöld kl. 20 undir yfirskriftinni: „Hver á sér fegra föðurland“.
Dagskráin verður borin uppi af tveimur kórum héraðsins, Kvennakórnum Sóldísi og Karlakórnum Heimi. Valin verða lög til flutnings er varpa ljósi á sögu fullveldisins og síðar lýðveldisins Íslands í 100 ár. Í dagskrárkynningu segir að reynt verði að höfða til allra aldurshópa í lagavali og draga fram mikilvægi þess að fá að lifa í frjálsu og fullvalda landi.
„Þetta er í tilefni af aldarafmæli fullveldisins en Karlakórinn Heimir og Kvennakórinn Sóldís syngja þarna sex til sjö lög hvor. Svo syngja kórarnir saman í fyrsta skiptið tvö lög í lokin,“ segir Agnar Gunnarsson fv. oddviti Akrahrepps, en hann á veg og vanda af skipulagningu atburðarins. Hann segir marga koma að því að lesa á milli laga, bæði karlar og konur, en stiklað verður á því stærsta í heiminum, Íslandi og héraðinu á þessum 100 árum. Meðal annarra atriða munu Matthildur Ingimarsdóttir, á Flugumýri, syngja við undirleik Sæþórs Hinrikssonar, Syðstu-Grund.
„Þetta lítur vel út, verður um tveggja tíma dagskrá með hléi. Aðgangur er 1000 kall inn rétt til að dekka húsaleiguna,“ segir Agnar.
En er pláss fyrir tvo kóra á sviðinu?
„Ja, þeir hafa ekki kvartað ennþá þannig að ég held að það verði að reyna á það. Eru ekki allir bræður og systur þegar svona er komið og geta haldið hvert á öðru ef þarf.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.