Hvatningarverðlaun SSNV - atvinnuþróunar árið 2009 til Léttitækni á Blönduósi
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) veitir árlega hvatningarverðlaun til fyrirtækis á starfssvæði samtakanna. Hvatningarverðlaun SSNV – atvinnuþróunar hafa verið veitt frá árinu 1999 og eru þau í senn hvatning til áframhaldandi starfsemi og viðurkenning fyrir góðan árangur. Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og þróunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra.
Að þessu sinni er það fyrirtækið Léttitækni á Blönduósi sem hlýtur verðlaunin vegna þess frumkvæðis og framsýni sem stjórnendur og starfsmenn hafa sýnt við uppbyggingu fyrirtækisins og þróunar á gæðavörum.
Fyrirtækið er í eigu Jakobs Jónssonar og Katrínar Líndal á Blönduósi og er stofnað árið 1995.
Léttitækni sérhæfir sig í framleiðslu og innflutningi á tækjum til að létta dagleg störf og auka afköst, allt frá léttum vögnum og trillum upp í stóra sérhæfða lyftara. Fyrirtækið hefur frá upphafi haft það að megin markmiði að framleiða og flytja inn vörur til að létta störf og auka afköst starfsmanna í íslenskum fyrirtækjum. Þessi tæki eru nefnd "léttitæki" og af því er nafn fyrirtækisins dregið. Þá er fyrirtækið umsvifamikið í framleiðslu og uppsetningu hillukerfa.
Léttitækni hefur sýnt fram á að fyrirtæki í sérhæfðri framleiðslu geta náð góðum árangri með starfsemi á landsbyggðinni. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa lagt áherslu á vöruþróun með það að markmiði að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. Fyrirtækið hefur vaxið mikið síðustu misseri ekki síst vegna opnunar söludeildar í Reykjavík og aukinnar áherslu á innflutning.
Verðlaunagripurinn
Verðlaunagripurinn er tréskurðarverk gert af Hrefnu Aradóttir handverks- og listakonu á Blönduósi. Gripurinn er skorinn út í Húnvetnskan alaskavíði á fæti úr lerkisneið.
Hvatningarverðlaun SSNV hafa áður verið veitt eftirtöldum aðilum:
Árið 2008 – Sjávarleður á Sauðárkróki.
Árið 2007 - Siglufjarðar Seigur – bátasmiðja.
Árið 2006 - Forsvar ehf á Hvammstanga.
Árið 2004 - Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Árið 2003 - Háskólinn á Hólum.
Árið 2002 - Síldarminjasafnið á Siglufirði.
Árið 2001 - Hestamiðstöðin Gauksmýri.
Árið 2000 - Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Árið 1999 - Kántrýbær á Skagaströnd.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.