Hvatapeningar vegna vetrastarfs 2009
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur auglýst eftir umsóknum foreldra 6-16 ára barna í sveitarfélaginu sem eiga rétt á 10.000. króna Hvatapeningum, einu sinni á ári, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Börnin þurfa að vera á aldrinum 6-16 ára ( fædd 1993-2003) með lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði. Æfinga-og þátttökugjöld þurfa að lágmarki að nema 30.000.- og þarf að stunda eitthvað tvennt af sviði tómstunda-íþrótta og menningar. Systkini á þessum aldri sem ekki ná hvert um sig lágmarkinu en 30.000.- til samans geta nýtt sér tvö og tvö eina greiðslu Hvatapeninga.
Endurgreiðslan nær til eftirfarandi námskeiða og þátttöku hjá íþróttahreyfingunni; knattspyrnu, körfu, frjálsum, sundi, skíðum ( árskort á skíðasvæðið einnig ), golfi, siglingum, skák, hestamannafélögum. Tónlistarskólum, skátum, Vetrar-t.í.m., Farskóla og öðrum þeim sem viðurkenndir eru af Frístundasviði.
Umsóknarfrestur um Hvatapeninga fyrir vetrarstarf á árinu 2009 rennur út 15. janúar 2010.
Sjá nánar á heimasíðu Sveitarfélagsins
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.