Hvasst en hiti næsta sólahringinn
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
19.11.2009
kl. 08.21
Spáin fyrir Strandir og Norðurland vestra gerir ráð fyrir norðaustan 13-20 m/s og rigningu, hvassast á Ströndum. Dregur smám saman úr vindi í nótt og á morgun. Hiti 1 til 5 stig.
Hvað færð á vegum varðar þá eru hálkublettir á Þverárfjalli og á milli Sauðárkróks og Hofsós og einnig á Skagfirðingarbraut. Hálka er í Blönduhlíð og á Öxnadalsheiði. Aðrar leiðir eru greiðfærar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.