Hugmyndabanki náttúrufræðikennara stækkar

Þátttakendur og leiðbeinandi. Ljósm: Guðjón Ólafsson

Náttúrufræðikennarar Húnavatnssýslna voru boðaðir á fund þriðjudaginn 27. október í Húnavallaskóla.  Markmið fundarins var að ræða saman, skiptast á verkefnum,  hugmyndum og kennsluaðferðum í náttúrufræði.  

Kennurunum var gert að koma  með kennsluáætlanir, verkefni, bækur og önnur gögn sem tengjast greininni og reynst hafa vel í kennslunni.  Allir höfðu eitthvað fram að færa og jókst því hugmyndabanki kennaranna mikið. Þátttakendur ákváðu að hefja reglubundið samstarf með aðstoð netsins. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Jóhanna Stella Jóhannsdóttir, kennari Húnavöllum. Námskeiðið var haldið á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún.

/Húni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir