Hrossablót Söguseturs íslenska hestsins

Reykjarhólsskógur Mynd:Nat.is

Sögusetur íslenska hestsins í samvinnu við Hótel Varmahlíð og veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri stendur fyrir hrossablóti á Hótel Vaarmahlíð laugardagskvöldið 17. október.
Blótið hefst með drykk  kl. 19.30. Er hér um  sannkallað matar- og skemmtikvöld að ræða þar sem hinn  landsþekkti og margverðlaunaði veitingamaður Friðrik V. ásamt snillingnum Þórhildi Maríu Jónsdóttur matreiðslumeistara á Hótel Varmahlíð töfra fram glæsilega veislu með hrossið í aðalhlutverki.

Undir borðhaldi verður síðan boðið upp á skemmtun  í anda skagfirskrar menningar. Sigurður Hansen flytur eigin ljóð. Félagarnir Siggi Björns á Ökrum og Jói í Stapa kveða rímur og Miðhúsabræður þenja nikkurnar. Blótsstjóri er Bjarni Maronsson.

Borðapantanir fara fram á info@hotelvarmahlid.is eða í síma 453 8170.

Verði er stillt í hóf, aðeins kr. 6.200. Hótel Varmahlíð býður uppá sérstakt gistitilboð fyrir veislugesti, tveggja manna herbergi með morgunverði aðeins kr. 8.000
Hér er einstakt tækifæri fyrir fólk að eiga notalega kvöldstund, njóta glæsilegs kvöldverðar og upplifa sannkallaða skagfirska skemmtun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir