Hörpuskel í hvítlauksolíu, kjúklingur í beikonsósu og rabarbarakaka

Þessa vikuna eru það Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Már Hermannsson á Hvammstanga sem koma með uppskriftir við allra hæfi. -Þegar við settumst niður til að ákveða hvaða uppskriftir ættu að verða fyrir valinu komu strax hugmyndir frá krökkunum á heimilinu.  Þar sem þeim finnst mjög gaman að baka og þau eru að byrja að þreifa fyrir sér í eldamennsku, þá eru þetta þannig réttir sem þau ráða mjög auðveldlega við.  Þetta eru líka bragðgóðir réttir og fljótlegir því ekki veitir af í því tímaleysi sem oft einkenna nútíma fjölskyldur. 

Forréttur    

Hörpuskel í hvítlauksolíu

  • Matarolía
  • Sítrónusafi
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Fiskikrydd

Hörpuskel, sett út í og látið vera í stofuhita í um 3 klst. Borið fram með ristuðu brauði.

 

Aðalréttur

Kjúklingur í beikonsósu

  • 4 kjúklingabringur
  • Beikon
  • 5 dl matreiðslurjómi
  • 1 lítil dós tómatpuré

Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og steikið hann á pönnu. Vefjið beikonsneið utan um hvern bita og raðið í eldfast mót.  Hrærið saman matreiðslurjóma  og tómatpuré og hellið yfir kjúklinginn. Bakað í ofni í ca 40 mín. við 200° C. Gott er að hafa hrísgrjón og salat með þessu.

 

Eftirréttur

Rabarbarakaka

  • 100 g hveiti
  • 100 g sykur
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 egg
  • U.þ.b. 500 g rabarbari
  • 100 g púðursykur
  • 50 g kókosmjöl

Hrærið saman hveiti, sykur, lyftiduft, egg og rabarbara ásamt safanum af rabarbaranum ef hann hefur verið í frysti.  Hellið í eldfast mót.  Blandið saman púðursykri og kókosmjöli og sáldrið yfir deigið.  Bakið í 175-200°C heitum ofni í 20-30 mínútur.  Gott er að hafa ís eða þeyttan rjóma með þessu.

Verði ykkur að góðu.

Áður birt í Feyki í apríl 2010

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir