Heitt vatn um Skagafjörð - 5 ára áætlun Skagafjarðarveitna

Á stjórnarfundi Skagafjarðarveitna þann 8. maí var samþykkt 5 ára áætlun um áframhaldandi hitaveituvæðingu dreifbýlis í Skagafirði ásamt röðun framkvæmda á því tímabili eða frá árinu 2015 til 2019.

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur um langt árabil verið í fararbroddi annarra sveitarfélaga á Íslandi í heitavatnsvæðingu bæði þéttbýlis og dreifbýlis.  Árið 2013 var lögð hitaveita í Hegranesið, og nú árið 2014 er verið að lengja þá veitu yfir í Hofsstaðarplássið og  verður þá búið að leggja heitt vatn til rúmlega 90%  íbúa í Skagafirði.  Með framkvæmdum næstu 5 ára hækkar hlutfall þeirra sem hafa aðgang að heitu vatni í dreifbýli úr 55% í 80% sem er sennilega hæsta hlutfall sem nokkurt sveitarfélag af okkar stærðargráðu getur státað af hvað heitavatnsvæðingu dreifbýlis varðar.

Fyrir liggur að mikill áhugi er og hefur verið hjá íbúum víðsvegar í sveitarfélaginu um að fá til sín heitt vatn.  Á haustdögum 2013 ákvað stjórn Skagafjarðarveitna að fá Verkfræðistofuna Stoð til að grófhanna lagnaleiðir og gera kostnaðaráætlanir fyrir þau svæði sem ekki þegar var búið að leggja heitt vatn um. Í framhaldinu var málið unnið áfram innan veitnanna og meðal annars lagt mat á hagkvæmni svæðanna og fleira sem skiptir máli áður en ákvarðanir sem þessar eru teknar. Markmiðið með þessari vinnu allri var að gera áætlun til næstu 5 ára um röðun hitaveituframkvæmda í sveitarfélaginu.

Það er því mjög ánægjulegt að geta nú lagt fram einróma samþykkt stjórnar Skagafjarðarveitna um framkvæmaráætlun næstu 5 ára, en hún er:

Árið 2015

Lögð hitaveita í Austur Fljót frá Haganesvík að Brúnastöðum og Skeiðsfossi. Jafnframt verði skoðuð stækkun hitaveitu frá Lambanes Reykjum að Lambanesi og Lambanesás í samráði við hlutaðeigandi.

Árin 2016 og 2017

Lögð hitaveita í Lýtingsstaðahrepp frá Goðdölum að Brúnastöðum ásamt lagningu hitaveitu í Dalspláss.

Árin 2018 og 2019

Lögð hitaveita frá Hofsósi um Óslandshlíð, upp í Hjaltadal og að Lóni. (Þrýstiprófun á borholu í Hrollleifsdal getur haft áhrif á stærð heildarsvæðisins). Ein af forsendum þess að áætlunin gangi eftir er að meirihluti íbúa á hverju svæði taki inn heitt vatn á framkvæmdartímanum og geri þar með framkvæmdina mögulega en miðað við þann mikla áhuga sem við finnum fyrir um lagningu á heitu vatni um dreifbýlið á ég ekki von á öðru en að sá áhugi skili sér alla leið.  Framkvæmdir hvers árs eru einnig háðar samþykki Sveitarstjórnar hverju sinni en þar sem allir fulltrúar allra framboða eru henni samþykkir tel ég líklegt að svo verði áfram enda er það hagsmunamál allra Skagfirðinga að efla og bæta búsetu skilyrði í Skagafirði.

Árin eftir 2019

Þrátt fyrir þetta stóra skref fram til ársins 2019 verða ennþá nokkur svæði án hitaveitu.  Sum af þessum svæðum eru nokkuð sjálfbær og munu koma inn eftir 2019 á sömu forsendum og ofangreind svæði, en önnur og jafnvel einstaka jarðir innan ofangreindra svæða liggja í einhverjum tilfellum það illa við lagnaleiðum að þau falla út vegna mikils kostnaðar.  Hér er hinsvegar verið að tala um hlutfallslega mjög lítinn fjölda af íbúum Skagafjarðar og því spurning hvort ekki sé rétt til framtíðar að Sveitarfélagið Skagafjörður komi til móts við þessi óhagstæðu svæði með fjárhagslegum stuðningi við heimtaugagjöld og geri þar með öllum íbúum mögulegt að njóta þeirra hlunninda og lífsgæða að fá heitt vatn.

Rétt er að taka fram til útskýringa að öll hitaveituvæðing Sveitarfélagsins er og hefur verið  sjálfbær innan hvers svæðis sem þýðir að hverju og einu svæði hefur verið gert að standa undir framkvæmdarkostnaði og borga upp framkvæmdina á um 20 árum.    Allir íbúar Skagafjarðar búa hinsvegar við sama orkuverð hvar sem þeir eru staðsettir og er það að mínu viti til fyrirmyndar.  Stjórnvöld ættu að hafa þetta til hliðsjónar við verðlagningu rafmangs til mismunandi svæða á landinu öllu.

Heitt vatn og kannski líka ljósleiðari.

Ljósleiðaravæðing dreifbýlis og þéttbýlis í Skagafirði er annað verkefni sem sveitarfélagið hefur komið að í gegnum árin, og í raun hefur mjög margt gerst þó gatan hafi ekki alltaf verið greið.  Til að gera langa sögu stutta þá á fjarskiptafyrirtækið Míla í dag það sem áður hét Gagnaveita Skagafjarðar en forsvarsmenn Mílu hafa lýst áhuga sínum á að halda áfram að ljósleiðaravæða Skagafjörð.  Á dögunum ákváðu þeir t.d. að leggja ljósleiðarastreng með heitavatnslögninni úr Hegranesi yfir í Hofstaðarpláss og verður í sumar lagður ljósleiðari með þeirri lögn heim að hverjum bæ en fyrir eiga þeir ljósleiðara í Blönduhlíðinni sem var einmitt lagður í kjölfar lagningar á heitu vatni.

Framundan eru viðræður Sveitarfélagsins Skagafjarðar við forsvarmenn Mílu um frekari útfærslu á hugsanlegri ljósleiðaravæðingu með þeim heitavatnslögnum sem stjórn Skagafjarðarveitna hefur ákveðið að fara í næstu 5 árin og þá um leið að ræða lagningu ljósleiðara um þau svæði sem búið er að leggja heitt vatn um.  Við bindum miklar vonir við að þær viðræður muni leiða til enn frekari ljósleiðaravæðingar um sveitarfélagið.

Það er því óhætt að segja að framundan séu spennandi tímar. Með tilkomu heitavatnsins og hugsanlega ljósleiðara batna lífsgæði fólks og það opnast atvinnumöguleikar fyrir framtakssama einstaklinga sem mun leiða af sér þéttingu  byggðar og fjölbreyttara atvinnulíf, öllum til hagsbóta.

Áfram Skagafjörður.

Einar E. Einarsson
Formaður Veitunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir