Hálfvitar og Hvanndalsbræður í Miðgarði
Félagsheimilið Miðgarður verður fullt af vitleysingum laugardagskvöldið 7. nóvember. Allavega sviðið, því þar verða hverjir á fætur öðrum Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir.
Hljómsveitir sem þekktar eru fyrir að taka sig allsendis óhátíðlega, en líta hinsvegar mjög alvarlegum augum það verkefni sitt að skemmta fólki með öllum tiltækum ráðum. Það má eiginlega skora á fólk að láta sér leiðast á tónleikunum. Enginn verðlaun eru samt í boði fyrir þá sem ekki skemmta sér, enda frekar heimskulegt markmið.
Báðar þessar norðlensku fjörsveitir fara mikinn þessa dagana. Hálfvitar gera sig breiða í hverri spurningakeppninni á fætur annarri auk þess sem að spila fyrir fullum húsum hér og þar, og Hvanndalsbræður prýða vinsældarlistana með "La la laginu" og "Vinkonu".
Tónleikarnir í Miðgarði hefjast kl. 21.30. Forsala miða er á midi.is, í Ólafshúsi á Sauðárkróki og í Eymundsson á Akureyri.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.