Fundur um Hagleikssmiðjur í kvöld

vaxtasamningurHandverksfólki á Norðurlandi vestra er boðið til fundar á Hótel Blönduósi, í kvöld 19. október kl. 20:00. Á fundinum mun Ari Þorsteinsson, verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar á Nýheimum á Höfn, kynna verkefnið Hagleikssmiðjur.

 Birna Kristjánsdóttir, sem nýlega tók við starfi sérfræðings í textílfræðum við Háskólasetrið á Blönduósi, mun segja frá starfi sínu og e. t. v. lauma einhverjum hugmyndum að fundargestum.

 Að þessu loknu er gert ráð fyrir að viðstaddir taki upp þráðinn frá handverksfundinum í Kvennaskólanum í vor, varðandi eflingu samstarfs handverksfólks á Norðurlandi vestra.

 Nánar um Hagleikssmiðjur HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir