Fulltrúi VG og óháðra lagði til að breyting sem gerð var á skólaakstri í Skagafirði yrði endurskoðuð

Vinstri grænir og óháðir. MYND AÐSEND
Vinstri grænir og óháðir. MYND AÐSEND

Fulltrúi VG og óháðra lagði fram á fundi fræðslunefndar Skagafjarðar í gær, 5. september, tillögu um endurskoðun á nýlegri breytingu á skólaakstri hjá sveitarfélaginu varðandi það að komið yrði til móts við þá nemendur sem breytingarnar hafa veruleg áhrif á. Einnig gerði fulltrúi VG og óháðra athugasemd við hvernig staðið var að upplýsingaskyldu til foreldra viðkomandi nemenda en þeir fengu ýmist símtal eða tölvupóst daginn fyrir skólasetningu.

Úr fundagerð fræðslunefndar 5. september 2023: Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, fulltrúi Vg og óháðra vill bókað að ljóst sé að við útboð skólaaksturs í sumar urðu efnislegar breytingar þvert á það sem segir í fundargerð frá fræðslunefnd þann 9. maí síðastliðinn. Nefndarfólki fræðslunefndar var ekki gerð grein fyrir umfangi þeirra breytinga sem áttu sér raunverulega stað. Einnig var upplýsingaskyldu til foreldra um væntanlegar breytingar á skólaakstri verulega ábótavant. Ábendingar hafa borist frá foreldrum vegna alvarlegra bresta á umferðaröryggi á skólaakstursleiðum. Í ljósi þessa alls óskar undirrituð eftir endurskoðun reglna um skólaaksturs í dreifbýli Skagafjarðar og einnig að kannað verði hvort hægt sé að komast á móts við þá nemendur sem þessar breytingar hafa veruleg áhrif á þannig að þjónusta við þá haldist óbreytt á yfirstandandi skólaári.

Reglur um skólasókn í öðru skólahverfi eru í gildi hjá sveitarfélaginu og ekki hefur verið ágreiningur um afmörkun skólahverfa sem þar er skilgreind. Útboð sem fram fór á skólaakstri í dreifbýli í Skagafirði var unnið á grundvelli gildandi reglna sem fræðslunefnd og sveitarstjórn samþykktu samhljóða og mikil sátt hefur ríkt um. Mikilvægt er að allir sitji við sama borð hvað þessi mál varðar og því er illmögulegt að veita svigrúm fyrir breytingar á skólaakstri á einum stað en ekki öðrum.

Sveitarfélög landsins hafa ekki boðið upp á fljótandi skólahverfi enda myndi slíkt kalla á mikla skipulagningu, mjög breytilegan akstur og akstursleiðir á milli skólahverfa og mjög verulega aukinn kostnað við þá þjónustu.

Fræðslunefnd hefur verið mjög liðleg við að veita undanþágu frá skólasókn í skólahverfi og hefur nefndin ávallt verið samstíga í afgreiðslu þessara erinda enda mikilvægt að jafnræðis sé gætt á meðal íbúa sveitarfélagsins. Í slíkum tilvikum eru foreldrar barna upplýstir um að akstur er ekki samþykktur samhliða námsvist í öðru skólahverfi enda taka akstursleiðir mið af skólahverfum. Í undanþágunni felst að foreldri þarf sjálft að sjá um akstur til viðkomandi skóla eða semja við bílstjóra á leið sem þangað ekur að barnið fái að njóta akstursþjónustu hans. Í þessu felst að ef samkomulag næst á milli foreldra og viðkomandi bílstjóra þá þarf foreldri að aka barni í veg fyrir akstursleið hans, á öruggum og heppilegum stað sem báðir aðilar fallast á. Sveitarfélagið hefur ekki milligöngu um og ber ekki ábyrgð á slíkum samningaviðræðum.

Í ljósi framangreinds hafnar meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks tillögu VG og óháðra.

Sveitarfélagið birti á vef sínum grein 24. ágúst sl. þar sem farið var yfir skólahverfi í Skagafirði og reglur um undanþágu fyrir skólasókn í öðru skólahverfi. Greinina má finna hér >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir