Fræðasetrið opnar á Skagaströnd

Fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í sagnfræði opnar formlega á Skagaströnd föstudaginn 23. apríl kl. 16 og á sama tíma opnar Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. og vígir nýjar rannsóknarstofur kl. 16. Opnunarathöfn verður í salnum í Kaupfélagshúsinu 16:00 - 19:00.

Opið hús:

Í nýjum rannsóknarstofum Biopol og hjá Fræðasetrinu

Í Kaupfélagshúsinu

Í Nesi listamiðstöð 

Í Árnesi – elsta húsi bæjarins

Daginn eftir, 24. apríl, er fyrsta opna málþingi Fræðasetursins: „Nokkur brot úr sögu samskipta Íslands við erlend ríki – Til upprifjunar fyrir pólitíska umræðu“.

Boðið verður upp á ferð með leiðsögumanni í Kálfshamarsvík.

Sætaferðir eru frá Reykjavík 23. apríl kl. 12 og  til Reykjavíkur 24. apríl kl. 16:30.

Þriggja rétta kvöldverður í Kántrýbæ á föstudagskvöldinu kostar kr. 4190. Nánar auglýst á ssnv.is og víðar.

/Skagaströnd.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir