Feðgar unnu í Opna KS mótinu
Fyrsta opna golfmót sumarsins, Opna KS mótið, hjá Golfklúbbi Sauðárkróks var haldið á Hlíðarendavelli í gær. Rjómablíða var nánast allan tímann og völlurinn hefur aldrei verið eins góður í byrjun golfvertíðar og núna í ár. Á heimasíðu GSS segir að leikið hafi verið með Texas Scramble fyrirkomulagi og voru 18 lið skráð til leiks eða samtals 36 kylfingar.
Samkvæmt Gss.is var keppnin hörð og spennandi en að lokum stóðu feðgarnir Elvar Ingi Hjartarson og Hjörtur Geirmundsson uppi sem sigurvegarar. Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin og Kaupfélag Skagfirðinga gaf verðlaunin í mótið eins og mörg undangengin ár. Þá voru einnig veitt nándarverðlaun fyrir að vera næstur holu á 3/12. braut og þau hlaut Hákon Ingi Rafnsson. Verðlaun fyrir að vera næstu holu á 6/15.braut hlaut Arnar Geir Hjartarson.
Fimm efstu sætin voru eftirfarandi:
Keppendur
Elvar Ingi Hjartarson og Hjörtur Geirmundsson
Þröstur Kárason og Hlynur Freyr Einarsson
Arnar Geir Hjartarson og Ingvi Þór Óskarsson
Þorbergur Ólafsson og Brynjar Örn Guðmundss.
Telma Ösp Einarsdóttir og Hákon Ingi Rafnsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.