Ekki ákært í Blönduósmálinu
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
01.03.2023
kl. 14.05
RÚV greindi frá því fyrr í dag að héraðssaksóknari muni ekki gefa út ákærur í skotárásarmálinu á Blönduósi. Tvennt lést í árásinni, byssumaðurinn sjálfur og kona á sextugsaldri.
Héraðssaksóknari ákvað að fella málið niður á grundvelli neyðarvarnar og því verður engin ákæra lögð fram í tengslum við skotárásina en feðgar höfðu réttarstöðu sakbornings í málinu. Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu RÚV en hægt verður að kæra þá ákvörðun til ríkissaksóknara.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.