Einn gisti fangageymslu á Blönduósi

Mbl.is segir frá því að einn maður þurfti að gista í fangageymslu lögreglunnar á Blönduósi í fyrrinótt vegna drykkjuláta á öðrum í jólum. Að sögn lögreglu lét hann eins og vitlaus maður eftir drykkju og var því tekinn höndum og látinn sofa úr sér.

Þung færð var á Blönduósi um helgina eftir mikla ofankomu yfir hátíðarnar en umferðin gekk þó að mestu slysalaust fyrir sig. Á Þorláksmessu var kona staðin að því að keyra bíl þrátt fyrir að hafa áður verið svipt ökuréttindum. Á aðfangadagskvöld varð einn útafakstur og minniháttar umferðaróhapp á annan í jólum, en í báðum tilfellum sluppu bílstjórar ómeiddir.

oli@feykir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir