Búist við margmenni í Reiðhöllinni í kvöld

Búast má við miklu fjöri í reiðhöllinni í kvöld

 Að sögn Eyþórs Jónassonar, reiðhallarstjóra á Sauðarkróki, búast menn þar á bæ við miklum fjölda manns á skemmtun í Reiðhöllina en búið að er taka glæsilegt hljóðkerfi á leigu til að tónlistaratriði njóti sín sem best.

-Við erum að leggja mikið í kvöldið. Við höfum tekið á leigu stórt og mikið hljóðkerfi þanngi að þau tónlistaratriði sem verða í boði koma til með að skila sér frábærlega vel. Það verður hörkusöngskemmtun að skagfirskum sið, fjöldasöngur, Abba og Fúsaleg Helgi auk þess sem við bjóðum upp á skeiðkeppni. Þá var að detta inn óvænt atriði  eða tveir vígalegir stóðhestar í eigu Tryggva Björnssonar. Tryggvi og Siggi Sig munu sína hestana. Eftir skemmtunina verður síðan pöbbastemning og lifandi tónlisti í húsinu, segir Eyþór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir