Blómlegt menningarlíf
Síðari umsóknarfrestur ársins 2009 um verkefnastyrki Menningarráðs Norðurlands vestra rann út 15. september sl. Alls bárust 65 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 47 milljónum króna. Á fundi sínum, 7. október sl., ákvað menningarráðið að úthluta verkefnastyrkjum til 52 aðila alls að upphæð 18.300.000 kr. Af þessum átján milljónum er um fjórðungi upphæðarinnar varið til tónlistarverkefna og rúm 20% renna til varðveislu menningararfsins og safnamála. Afhending verkefnastyrkja fór fram í Kántrýbæ á Skagaströnd miðvikudaginn 21. október sl.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki:
1.750.000 kr. Skotta ehf. kvikmyndafjelag
Tvö verkefni: Bjarni Har. og Dansað á fáksspori
1.500.000 kr. Söngskóli Alexöndru, Tónlistarskóli A-Hún. og Tónlistarskóli V-Hún.
Draumaraddir norðursins
1.000.000 kr. Byggðasaga Skagafjarðar
Byggðasaga Skagafjarðar
1.000.000 kr. Sögusetur íslenska hestsins
Tvö verkefni: Íslenski hesturinn, yfirlitssýning til 1950 og Söfnun, skráning og
skönnun heimilda um íslenska hestinn.
850.000 kr. Helga Rós Indriðadóttir
Tvö verkefni: Klassík 2010 – Óperutónleikar í Skagafirði og Sönglög, Jórunn
Viðar. Útgáfutónleikar.
750.000 kr. Nes Listamiðstöð
Dvalar- og verkefnisstyrkir fyrir listamenn í Nes listamiðstöð 2010
500.000 kr. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
Stafrænn ljósmyndagrunnur
500.000 kr. Sigríður Tryggvadóttir
Sumardagurinn fyrsti, heimilamynd.
400.000 kr. Landnám Ingimundar gamla
Hljóðleiðsögn um slóðir Vatnsdælasögu
400.000 kr. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna og Jenný Karlsdóttir
Altarisdúkar í íslenskum kirkjum.
400.000 kr. Jón Þorsteinn Reynisson
Tvö verkefni: Útgáfa geisladisks og Gömlu slagararnir
400.000 kr. Karlakórinn Heimir
Upp skaltu á kjöl klífa.
400.000 kr. Fluga hf.
Hrossaræktandinn Sveinn Guðmundsson. Ævi og störf. Reiðhallarleiksýning
400.000 kr. Nemendafélag FNV
Söngleikritið Sódóma
400.000 kr. Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur
Minnisvarði um Guðmund Bergþórsson
400.000 kr. Vesturfarasetrið
Minningarstofa um Vestur-íslenska rithöfundinn Bill Holm.
350.000 kr. Karlakórinn Lóuþrælar
Tvö verkefni: Í vesturveg og Haust- og jólatónleikar
300.000 kr. Elinborg Sigurgeirsdóttir
Lauf, útgáfa geisladisks
300.000 kr. Bróðir Svartúlfs
Útgáfa geisladisks
250.000 kr. Sögufélagið Húnvetningur og Ingi Heiðmar Jónsson
Húnvetnskir ættstuðlar
250.000 kr. Héraðsskjalasafn V-Hún.
Ljóð húnvetnskra skáldkvenna dregin fram í dagsljósið
250.000 kr. Lárus Ægir Guðmundsson
Skip og bátar á Skagaströnd 1908-2008
250.000 kr. Lafleur ehf.
Hinn svali blær / Glíman við Glám
250.000 kr. Háskólinn á Hólum – Hólarannsóknin
Björgunarrannsókn við Kolkuós í Skagafirði
250.000 kr. Sveitarfélagið Skagaströnd
Stofnun ljósmyndasafns og söfnun eldri og yngri ljósmynda
250.000 kr. Guðmundur Ólafsson
Heimildamyndagerð
250.000 kr. Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga
Skagfirska kirkjurannsóknin
250.000 kr. Guðný Káradóttir o.fl.
Raddir fólksins
250.000 kr. Skagabyggð
Örnefnaskráning í Skagabyggð
250.000 kr. Fornverkaskólinn
Uppbygging á aðbúnaði og aðstöðu Fornverkaskólans
250.000 kr. Rósmundur Ingvarsson
Fornleifaskráning í Skagafirði
250.000 kr. Jón Hilmarsson
Skín við sólu Skagafjörður – ljósmyndabók
250.000 kr. Róbert Óttarsson
Æskudraumar – útgáfa geisladisks
250.000 kr. Verslunarminjasafn Bardúsa, Grettistak og Ferðamálafélag V-Hún.
Forn handbrögð – handverksnámskeið
250.000 kr. Hólmfríður Bjarnadóttir
Hvalrekinn á Ánastöðum – einleikur
250.000 kr. Leikfélag Sauðárkróks
Barnaleikritið Rúi og Stúi
250.000 kr. Guðrún Brynleifsdóttir
Skotta – einleikur
200.000 kr. Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls
Þýsk messa eftir Franz Schubert
200.000 kr. Skagfirski kammerkórinn
Á vetrarbraut
150.000 kr. Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi
Kynningar og markaðssetning Vefnaðarbókar Halldóru Bjarnadóttur
150.000 kr. Minningarsjóður Aðalheiðar E. Gunnarsdóttur
Styrktartónleikar
100.000 kr. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík og Sauðárkróksbíó
Kvikmyndalestin RIFF um land allt
100.000 kr. Háskólinn á Hólum
Fornleifar í landi Keldudals – heimasíða
100.000 kr. Héraðsskjalasafn A-Hún.
Horfnir tímar – hver er maðurinn/staðurinn?
100.000 kr. Málmblásarakvintett Norðurlands og Karlakórinn Heimir
Kórbrass á aðventu
100.000 kr. Rökkurkórinn
Jólatónleikar
100.000 kr. Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði
Skagfirskir tónar
100.000 kr. Kammerkór Norðurlands
Tónleikahald – íslensk kórtónlist
100.000 kr. Kirkjukór Sauðárkrókskirkju
Kirkjukvöld í Sæluviku
100.000 kr. Samkórinn Björk
Lúsíuhátíð
100.000 kr. Hestamannafélagið Neisti
Börn og unglingar á hestasýningum
100.000 kr. Matarkistan Skagafjörður
Málþing um íslenskan mat á MATUR-INN 2009
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.