Bjarni í leyfi til 1. apríl
feykir.is
Skagafjörður
04.01.2010
kl. 11.21
Bjarni Jónsson, VG, mun verða í fríi frá sveitastjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar og sem áheyrnarfulltrúi í Byggðaráði Skagafjarðar tímabilið 17. desember 2009 til og með 1. apríl 2010.
Gísli Árnason mun starfa sem staðgengill Bjarna meðan á fjarveru hans stendur auk þess sem Sigurlaug K Konráðsdóttir færist upp og verður 1. varamaður VG lista í Sveitarstjórn og varamaður áheyrnarfulltrúa í byggðaráði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.