Banaslys í Norðurárdal
feykir.is
Skagafjörður
25.01.2010
kl. 19.21
Banaslys varð Norðurárdal þegar maður missti stjórn á bíl sínum og hafnaði út í ánni. Maðurinn, sem er útlendingur, fór úr höfuðborginni í gær áleiðis norður og þegar hann hafði ekki skilað sér var hafin leit að honum. Bifreið mannsins var með erlendri diplómanúmeraplötu.
Lögregla og björgunarsveitir leituðu mannsins í dag með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar en bíllinn fannst á sjötta tímanum.
Hann virðist hafa misst stjórn á bíl sínum og hafnað út í ánni. Staðhættir voru með þeim hætti að afar erfitt var að greina bílinn í ánni og því tók leitin eins langan tíma og raun bar vitni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.