Aukning í lönduðum afla
feykir.is
Skagafjörður
13.01.2010
kl. 11.36
Skipakomum flutningaskipa í Sauðárkrókshöfn hefur fækkað milli ára um tíu skip.Samtals er hér um að ræða 48.000 brúttótonn á árinu 2009 en var árið 2008 80.969 brúttótonn. Aukning er í lönduðum afla um 1.518 tonn.
Þetta kom fram í yfirliti Gunnars Steingrímssonar, hafnarvarðar í Skagafirði, yfir hafnarstarfsemi 2009
Í Hofsóshöfn var einnig aukning í lönduðum afla um 627 brúttótonn. Landaður afli á Hofsósi var um 1.360 tonn. Í Haganesvík var landað 60 kílóum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.