Arnar Már og Kristín undirrita samninga um styrki
Á vef Stjórnarráðsins segir að Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar og Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar undirrituðu í fyrradag samninga um styrki vegna óstaðbundinna starfa. Annars vegar er um ræða starf sem staðsett verður í húsnæði Sýslumannsins á Húsavík og hins vegar starf sem staðsett verður í vinnustaðaklasanum Útibúinu á Hvammstanga. Samningarnir voru undirritaðir á Húsavík.
Markmið aðgerðarinnar er að efla búsetufrelsi með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Aðgerðin felur í sér að ríkisstofnanir sem hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrki vegna nýrra starfa utan svæðisins eða starfa sem verða færð frá höfuðborgarsvæðinu frá 1. nóvember 2024. Styrkjum er ætlað að koma til móts við ferðakostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum. Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára. Hámarksstuðningur við hvert starf getur numið tveimur milljónum króna á ári.
Samningarnir sem undirritaðir voru í fyrradag eru þeir fyrstu en jafnframt hafa verið samþykktir styrkir vegna þriggja annarra starfa. Þau eru starf skjalavarðar Þjóðskjalasafns Íslands, staðsett í Neskaupstað, starf lögfræðings hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, staðsett í Suðurnesjabæ og starf sérfræðings hjá Embætti landlæknis, staðsett á Akranesi.
Fréttin birtist fyrst á huni.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.