Ályktun nýkjörinnar stjórnar Heimssýnar

heimssyn-logoStjórnarfundur Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, skorar á ríkisstjórnina að draga umsókn um aðild Ísland að Evrópusambandinu til baka. Ljóst er að umtalsverður meirihluti þjóðarinnar er andvígur inngöngu í ESB.

Vafasamt er að meirihluti sé fyrir aðild á Alþingi, samanber umræður í sumar um þingsályktun um aðildarumsókn. Samningsstaða Íslands er afleit og bent hefur verið á að umsókn nú við ríkjandi aðstæður sé skaðleg hagsmunum Íslands. 

Ekki var haft samráð við þjóðina um hvort sækja ætti um aðild að ESB. Heimssýn harmar að sá möguleiki að spyrja hana álits skuli ekki hafa verið nýttur og minnir á að það ferli sem nú er hafið er aðlögunarferli með það að markmiði að aðlaga íslenskt þjóðfélag enn frekar að reglum og stöðlum Evrópusambandsins. Rangt er að aðeins sé um einfaldar og hefðbundnar samningaviðræður að ræða og gerð krafa um að þeim verði tafarlaust slitið. 

Stjórn Heimssýnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir