Alls voru 45 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Hólum
Þann 9. júní síðastliðinn var brautskráningarathöfn Háskólans á Hólum haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Í frétt á vef háskólansr segir að brautskráðir hafi verið einstaklingar frá fimm þjóðlöndum en auk íslenskra nemenda voru nemendur frá Danmörku, Þýskalandi, Portúgal og Ungverjalandi brautskráðir að þessu sinni. Alls brautskráðust 45 nemendur frá Hólum.
„Að þessu sinni brautskráðust 25 einstaklingar frá Ferðamáladeild, tólf með Diplómu í viðburðastjórnun, sjö með BA gráðu í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta og sex með BA gráðu í ferðamálafræði. Veittar voru tvær viðurkenningar fyrir námsárangur hjá Ferðamáladeild, til Magneu Láru Elínardótturr fyrir hæstu meðaleinkunn í BA í Ferðamálafræði og til Huldu Maríu Þorláksdóttur fyrir hæstu meðaleinkunn í Diplómunámi í Viðburðastjórnun.
Frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild brautskráðust fimm nemendur, fjórir með diplómu í fiskeldsfræðum og einn með MS gráðu í sjávar- og vatnalíffræði.
Frá Hestafræðideild brautskráðust 15 kandídatar með BS í reiðmennsku og reiðkennslu. Við brautskráninguna veitti Hestafræðideildin tvær viðurkenningar, annars vegar fyrir bestan samanlagðan árangur í reiðkennslufræðum og hins vegar fyrir hæstu meðaleinkunn á BS-prófi í reiðmennsku og reiðkennslu. Í ár var það Sigríður Vaka Víkingsdóttir, sem hlaut báðar þessar viðurkenningar,“ segir í fréttinni.
Þá kemur fram að að loknu ávarpi rektors, Hólmfríðar Sveinsdóttur flutti Ragna Guðrún Snorradóttir ávarp brautskráningarnema en tónlistarflutningur var í höndum Eysteins Guðbrandssonar og Róberts Smára Gunnarssonar. Kaffiveitingar eftir athöfn voru í höndum Kaffi Hólar. Lára Gunndís Magnúsdóttir, kennslustjóri stýrði athöfninni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.