Allir nema einn vilja áfram sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Sveitastjórn Skagafjarðar hefur samþykkt með átta atkvæðum gegn einu tillögu Gísla Árnasonar þess efnis að hvetja ríkisstjórn Íslands til þess að hverfa frá hugmyndum um að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið og sameina það iðnaðarráðuneytinu undir merkjum atvinnuvegaráðuneytis.
Í ályktun sem sveitarfélagið samþykkti segir; -Sjávarútvegur og landbúnaður eru burðarásar atvinnulífs í Skagafirði, líkt og víða um hinar dreifðu byggðir landsins. Sveitarstjórn telur að styrkja eigi ráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar í ljósi mikilvægis atvinnugreinanna fyrir þjóðina og endurreisn efnahagslífsins í stað þess að gera þær að deildum í nýju atvinnuvegaráðuneyti. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar telur að með sameiningu sé vegið að framtíð þessara atvinnugreina og lítið gert úr mikilvægi þeirra."
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Samfylkingu, lagðist gegn tillögu Gísla og óskaði bókað; -Það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin skuli standa við löngu boðaða fækkun ráðuneyta og að það sé gert með því að jafna aðstöðu allra atvinnugreina landsins innan stjórnkerfisins. Með þessu móti munu allar atvinnugreinar njóta góðs af heildstæðri atvinnu- og auðlindastefnu með uppbyggingu stoðkerfis nýsköpunar og þróunar."
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.