Aldrei verið jafn auðvelt að „fara norður“
Ísorka hefur hleypt straumi á nýja hraðhleðslustöð á Blönduósi en um er að ræða 150Kw Alpitronic Hypercharger stöð sem hefur 2x CCS tengi og getur því hlaðið tvo bíla í einu. Stöðin er staðsett við norðurenda Íþróttahússins á Blönduósi, nánar tiltekið á Melabraut 2. Stöðin er sýnileg í Ísorku appinu en í frétt á vef Ísorku segir að verkefnið hafi verið unnið í samstarfi við Orkusjóð.
Ísorkusíðan segir fjallbrött frá því að Húnvetningar hafi verið svo glaðir með nýju stöðina að þeir slógu upp veislu sem þeir kalla Húnavöku. „Reyndar hafa þeir haldið þá hátíð áður svo okkur finnst líklegt að veislan hafi ekki alfarið verið til heiðurs hraðhleðsustöðvarinnar. Þetta er auðvitað virkilega jákvætt fyrir íbúa í Húnavatnssýslu og nágrenni sem hafa beðið lengi eftir að Ísorka komi enn einu sinni til bjargar með nýrri hraðhleðslustöð. Ísorka fagnar þessari viðbót í hraðhleðslunetið sitt og vonar innilega að stöðin muni þjóna öllum rafbíla notendum vel,“ segir í frétt á vef Ísorku og svo er bætt við: „Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að „fara norður“.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.