Æskulýðsmessa í Sauðárkrókskirkju þann 3. mars kl. 20

Um árabil hafa nemendur úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra tekið að sér að sjá um kvöldmessu á æskulýðsdeginum sem er þann 3. mars nk. Að þessu sinni munu Áróra Ingibjörg Birgisdóttir, Einar Ísfjörð, Ísak og Jóel Agnarssynir, Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir og Steinunn Daníela Jóhannesdóttir syngja fagra tóna. Lydía Einarsdóttir varaformaður Nemendafélagsins mun svo flytja hugleiðingu. Verið öll hjartanlega velkomin til kirkjunnar kl. 20 á sunnudaginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir