Æðislegur heimalagaður ís
Nú fáum við gómsætar uppskriftir frá þeim Sigurjóni Guðmundssyni og Guðríði Ólafíu Kristinsdóttur á Blönduósi og er þar á ferðinni villibráðarkryddað lambalæri með góðri rjómasósu og ávaxtasalati og í eftirrétt er boðið upp á heimalagaðan ís sem ætti að kæta bragðlaukana.
Aðalréttur:
Villibráðarkryddað lambalæri:
- 1 meðalstórt lambalæri
- 1 tsk season-all
- 1 tsk thymian
- 1 ½ tsk fines-herbes eða villikrydd
- ¾ tsk tarragon (dragon)
Blandið kryddinu saman og jafnið utan á lærið sem búið er að þerra vel. Sett í steikingarpoka og steikt í ofni við 150°C í u.þ.b. 1 ½ klst.
Rjómasósa:
- 1 tsk súpukraftur
- ¼ tsk sítrónupipar
- ½ tsk season-all
- 2 msk tómatsósa
- 1 tsk sósulitur
- ¼ l rjómi
Hellið soðinu af lærinu í pott (síið ekki). Opnið pokann og glóðið kjötið við 250°C í 5-10 mín. Setjið sósupottinn á hita og stráið hveitinu yfir soðið. Hrærið í með þeytara, bætið við kryddinu, tómatsósunni og sósulitnum út í og látið sjóða í 2-3 mín. við vægan hita. Ef sósan er of bragðdauf má bæta örlitlu jurtakryddi út í. ( á mínu heimili er mikið sósufólk þannig að ég geri 2falda sósuuppskrift)
Meðlæti:
- Kartöflubakstur:
- 7-800 gr kartöflur
- 150 gr 26% gouda-ostur
- 1 dl rjómi
- 1 dl mjólk
- 1 tsk salt
- ½ tsk svartur pipar
- 1 tsk laukduft
Flysjið hráar kartöflur og skerið í jafnar sneiðar, u.þ.b. ½ sm. að þykkt. Raðið sneiðunum í smurt eldfast mót. Blandið saman rjóma, mjólk, rifnum osti og kryddi og hellið yfir kartöflurnar. Bakið við 180°C í u.þ.b. 1 klst.
Ávaxtarjómasalat:
- ½ dós kokkteilávextir
- 1 kiwi
- 1 banani
- ¼ l þeytirjómi (G-rjómi)
Þeytið rjómann og blandið niðurbrytjuðum ávöxtum út í. Berið fram kalt með kjötréttum. Ekki er ráðlegt að búa salatið til löngu fyrir notkun.
Eftirréttur:
Æðislegur ís:
- 6 eggjarauður
- 1 bolli púðursykur
- ½ l þeyttur rjómi
- 1 tsk vanilludropar
- 100 gr. Toblerone smátt brytjað
Eggjarauður og púðursykur þeytt vel saman, svo rest blandað útí og fryst.
Heit sósa:
- 4 stk mars
- 1 peli rjómi
- 100 gr. súkkulaði
Allt í pott við lægsta hita í ½ klst. Og ef vill salthnetur með á ísinn.
Verði ykkur að góðu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.