50 milljónir að láni vegna sundlaugar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
15.01.2010
kl. 11.08
Á fundi bæjarráðs Blönduóssbæjar síðastliðinn miðvikudag var samþykkt að sveitarfélagið tæki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 50.000.000 kr. til 14 ára vegna sundlaugarinnar.
Lánið er tekið til að fjármagna byggingu sundlaugarinnar og var Arnari Þór Sævarssyni, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Blönduósbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, eins og stendur í fundargerð.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.