Ykkar fulltrúar | Arna Lára Jónsdóttir skrifar
Kæru kjósendur í Norðvesturkjördæmi
Kjördagur er á morgun og lokasprettur í kosningabaráttunni er hafinn. Við frambjóðendur Samfylkingarinnar í Norðvestur höfum verið á ferð og flugi um kjördæmið, fengið að kynnast fjölmörgum íbúum og fyrirtækjum í bland við gamla kunningja. Fyrir hönd okkar vil ég þakka öllum sem hafið tekið á móti okkur, boðið okkur spjall, nestað okkur með góðum hugmyndum og leyft okkur að heyra um áskoranir í daglegu lífi. Þessi samtöl gefa okkur kjark og orku að berjast fyrir hagsmunum kjördæmisins.
Við þekkjum vel til, enda öll búsett hér og höfum fjölbreytta reynslu til að takast á við það sem er fram undan. Sjálf hef ég verið svo lánsöm að kynnast kjördæminu á margvíslegan hátt, í gegnum stjórnmál, leik og störf. Með þessa reynslu í farteskinu vona ég að kjósendur veiti mér stuðning til að tala máli þeirra á Alþingi og þar með umboð til að vinna að þeim fjölmörgum framfaraverkefnum sem nauðsynlegt er að fara í.
Áskoranirnar sem við er að glíma í kjördæminu eru margvíslegar. Eftir fjölmörg samtöl við kjósendur eru nokkur mál sem standa upp úr hvar sem komið er. Samgöngur, heilbrigðismál og orkumál, að ógleymdum áskorunum í efnahagsmálum. Kallað er eftir alvöru byggðastefnu með blómlegum byggðum.
Þessi mál verða ekki leyst með loforðum eða handabandi. Lausnin felst í skýrri framtíðarsýn, sterkri forystu og plani um hvernig eigi að hrinda úrbótum í framkvæmd.
Samfylkingin hefur lagt fram áætlun sem snýst um að lækka vexti, draga úr verðbólgu og styðja fjölskyldur og fyrirtæki. Við viljum fjárfesta í grunnþjónustu, byggja upp öflugar samgöngur og tryggja að ungt fólk geti séð framtíð sína í kjördæminu.
Til að koma á þessum breytingum sem kallað er eftir þarf sterka verkstjórn. Samfylkingin býður fram verkstjóra, Kristrúnu Frostadóttur. Konu sem kannanir sýna ítrekað að þjóðin treystir best til að standa í stafni þjóðarskútunnar næstu árin.
Undir forystu Kristrúnar Frostadóttur höfum við breytt Samfylkingunni og farið aftur í kjarnann. Á grunni málefnavinnu, þar sem við opnuðum flokkinn, mættum við í kosningabaráttuna með metnaðarfulla stefnu og skýrt plan um það hvernig við munum stýra landinu, fáum við til þess umboð frá kjósendum. Plan var unnið í samstarfi við fólkið í landinu. Kristrún hefur á stuttum tíma breytt flokknum og sýnt með því að hún er tilbúin til þess að leiða breytingar við stjórn landsins.Ég vil hvetja ykkur til að mæta á kjörstað og kjósa með hjartanu. Samfylkingin býður upp á nýtt upphaf fyrir Ísland – komdu með!
Með þakklæti fyrir málefnalega kosningabaráttu,
Arna Lára Jónsdóttir
Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.