Tölfræði 153. löggjafarþings
Þingfundum 153. löggjafarþings var frestað sl. föstudag, 9. júní 2023 en þingið var að störfum frá 13. september til 16. desember 2022 og frá 23. janúar til 9. júní 2023.
Í tilkynning frá skrifstofu Alþingis kemur fram að þingfundir hafi samtals verið 123 að tölu og stóðu í 659 og hálfa klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 19 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 17 klst. og 57 mín. Lengsta umræðan var um útlendingafrumvarpið en hún stóð samtals í 103 klst. og 37 mínútur. Þingfundadagar voru alls 105.
Af 225 frumvörpum urðu alls 82 að lögum og 143 voru óútrædd. Af 164 þingsályktunartillögum voru 24 samþykktar og 140 tillögur voru óútræddar.
31 skrifleg skýrsla var lögð fram. 17 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 15 til ráðherra og tvær til ríkisendurskoðanda. Fjórar munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.
Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 766. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 53 og var 48 svarað. 713 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 478 þeirra svarað en ein kölluð aftur. 234 biðu svars er þingi var frestað.
Þingmál til meðferðar í þinginu voru 1207 og tala þingskjala var 2092. Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 321 og sérstakar umræður voru 36.
Samtals höfðu verið haldnir 508 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 9. júní.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.