Þjónustukort Byggðastofnunar tilvalinn leiðarvísir fyrir sumarfríið
Ef ferðalög er framundan í sumar er Þjónustukort Byggðastofnunar tilvalinn staður til að verða sér úti um upplýsingar um hvar fjölbreytta þjónustu er að finna á landinu öllu.
Í kortinu eru allar þær upplýsingar á einum og sama staðnum um þá þjónustuþætti sem þú þarft til að fara í vel heppnað sumarfrí innanlands.
,,Finna má upplýsingar um þætti líkt og hleðslu- og bensínstöðvar á landinu, sundlaugar, tjaldsvæði, hótel, söfn og sýningar, veitingastaði, dagvöruverslanir, apótek og margt fleira sem til þarf fyrir vel heppnað ferðalag," segir á vef Byggðastofunar.
Anna Lilja Pétursdóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar, hefur séð um uppfærslur á þjónustukortinu. Hún segir að mikilvægt sé að uppfæra það reglulega svo upplýsingarnar séu hvað réttastar hverju sinni. Hún tekur því við ábendingum á netfangið annalilja@byggdastofnun.is ef einhver kemur auga á eitthvað sem vantar.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.