Tæpum 1,1 milljarði kr. úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Mynd af vef Stjórnarráðsins.
Mynd af vef Stjórnarráðsins.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hafi úthlutað tæpum 1,1 milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra en hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Norðurland vestra frítt við framlag úr sjóðnum. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytis segir að alls hafi verið veittir styrkir til 57 verkefna til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á hjúkrunarheimilum um allt land, auk nýframkvæmdar við byggingu þjónustumiðstöðvar í Grindavík.

Jafnframt segir að úthlutanirnar séu í samræmi við tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra sem leggur mat á umsóknir í samræmi við reglugerð um sjóðinn og gerir tillögur til ráðherra um úthlutanir úr honum. „Hæsta framlagið að þessu sinni, tæpar 112 milljónir króna, fer til Grindavíkurbæjar til byggingar þjónustumiðstöðvar með félagsaðstöðu fyrir aldraða. Við mat á umsóknum og forgangsröðun úthlutana lagði stjórnin sérstaka áherslu á verkefni sem miða að bættum aðbúnaði íbúa, s.s. breytingu fjölbýla í einbýli, endurbótum á hreinlætisaðstöðu, aðgengismál og endurbætur á öryggiskerfum. Einnig var áhersla lögð á brýn viðhaldsverkefni, bættan aðbúnað í sameiginlegum rýmum íbúa og endurbætur á starfsmannarýmum.“

Samkvæmt yfirliti yfir úthlutun úr FA hljóta þrjú verkefni styrk á Norðurlandi öllu, tvö sem Heilsuvernd, hjúkrunarheimili á Akureyri fær, annað til kaupa á hljóðmögnurum fyrir íbúa, alls tæpar tvær og hálf milljón krónur og svo til bættrar aðbúnaðar í sjúkraþjálfun tæpar 400 þúsund. Dalbær á Dalvík, fær rúmar átta milljónir vegna endurbóta á hreinlætisaðstöðu.

HÉR er hægt að nálgast upplýsingar um þá aðila sem hljóta framlög úr sjóðnum að þessu sinni og til hvaða verkefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir