Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi - Mat á umhverfisáhrifum

Forsíða kynningarrits tillagna að svæðisáætlun
Forsíða kynningarrits tillagna að svæðisáætlun

Öll sveitarfélög á Norðurlandi, eru að vinna að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum. Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2012, liggur nú fyrir og gefst almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin er afgreidd af viðkomandi sveitarstjórnum.

Hægt er að kynna sér tillöguna á vefsíðum Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi, þ.e. á www.ssnv.is og www.ssne.is, svo og á vefsíðu Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. (www.environice.is), sjá HÉR. Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi 31. mars 2023 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi
Hvanneyrargötu 3
311 Hvanneyri

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir