Samkomulag um samstarf Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóla Íslands
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) og Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hafa lengi átt farsælt samstarf á sviði fræðslu, rannsókna og nýsköpunar. Í gær var undirritað samkomulag um að efla samstarfið enn frekar með formlegri stofnun faghópa til að vinna að málefnum búgreina og faglegra þátta sem snerta landbúnað, landnýtingu, umhverfis- og loftslagsmál.
Faghóparnir munu greina tækifæri til aukins samstarfs á sviði ráðgjafar, kennslu, rannsókna og nýsköpunar og styrkja faglega stöðu greinanna. Sérlega verður hugað að samstarfi um ný rannsóknaverkefni BS, MS og PhD nema og leiðir til fjármögnunar þeirra verkefna m.a. með sameiginlegum styrkumsóknum. Á komandi tímabili verður sérstaklega stefnt að aukinni samvinnu á sviði nýrra verkefna og nýsköpunar í kynbótum búfjár, og umhverfis- og loftslagsmálum.
Endurmenntun LbhÍ hefur eflst mikið á undanförnum misserum og lögð er áhersla á að standa saman um áframhaldandi uppbyggingu námskeiða sem svara best þörfum bænda og annarra hagaðila.
Í ágúst verður sameiginlegur ráðunautafundur RML og LbhÍ þar sem starfsmönnum gefst kostur á að setja sig inn í verkefni hvors annars ásamt þvi að ræða nýja samstarfsfleti.
Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ og Karvel L Karvelssob framkvæmdastjóri RML segja samstarf RML og Lbhí hafa verið einstaklega farsælt og gott, sérfræðingar RML koma mikið að kennslu hjá LbhÍ og tryggja faglega breidd og gæði námsins. Sérfræðiþekking einstakra greina í landbúnaði byggir á mjög fáu fólki og því mikilvægt að samvinnan sé góð á milli aðila Mikil tækifæri eru til að efla enn frekar samstarfið og þá ekki síst til að sækja fram og auka enn frekar samstarf í rannsóknum og nýsköpun.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.