Samband íslenskra sveitarfélaga skorar á BRSB að fara með málið fyrir dómstóla

Mynd af FB-síðu Kjalar stéttarfélags.
Mynd af FB-síðu Kjalar stéttarfélags.

BRSB hefur farið mikinn í fjölmiðlum með ásakanir í garð sveitarfélaganna að þau mismuni starfsfólki sínu á fyrstu þrem mánuðum þessa árs. Jafnframt krefjast þau leiðréttingar á launalið útrunnins kjarasamnings sem þegar er að fullu efndur af hálfu sveitafélaganna.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur alfarið hafnað fullyrðingum BSRB um að sveitarfélög séu að brjóta jafnréttislög. Samband íslenskra sveitarfélaga skorar því á forystu BSRB að fara með málið fyrir dóm og óska eftir flýtimeðferð þess. Ef dómsniðurstaða sýnir fram á brot sveitafélaga þá verða laun starfsfólks leiðrétt, enda er það stefna sveitafélaga að fylgja jafnréttislögum í hvívetna.

BRSB hafnaði tilboði Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hefði tryggt félagsmönnum launahækkun í janúar 2023

Í kjaraviðræðum ársins 2020 hafnaði forysta BSRB fjórum tilboðum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem tryggt hefðu félagsmönnum þeirra launahækkanir frá 1. janúar 2023. Fram að undirskrift kjarasamnings bæjarstarfsmannafélaganna þann 8. mars 2020 reyndi formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga að telja formanni samninganefndar bæjarstarfsmannafélaga hughvarf og benti henni á, m.a. í fyrirliggjandi tölvupóstum, að höfnun þeirra á tilboði um sama samning og Starfsgreinasambandið hafði þegar gert við Samband íslenskra sveitarfélaga yrði til þess að bæjarstarfsmenn innan BSRB yrðu af launahækkunum sem Starfsgreinasambandið hafði þegar samið um frá 1. janúar 2023.

Kjarasamningurinn var undirritaður af samninganefndum beggja aðila, samþykktur í atkvæðagreiðslu félagsmanna og af stjórn sambandsins. Sveitarfélögin hafa að fullu efnt þann kjarasamning sem gerður var við bæjarstarfsmannafélögin á árinu 2020.

Kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga við bæjarstarfsmannafélögin var gerður af til þess bærum aðilum sem fara með umboð til kjarasamningagerðar og bera þá ábyrgð sem slíkt umboð felur í sér.

Tilboð um nýja kjarasamning liggur á borðinu

Þegar deilu aðila var vísað til ríkissáttasemjara nú í vor lá á borðinu tilboð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um 12 mánaða kjarasamning þar sem grunnlaun bæjarstarfsmanna myndu hækka um 8,78% frá 1. apríl 2023.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir