Rannsókn lokið á skotárás á Blönduósi og málið sent til héraðssaksóknara

Rannsókn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi þann 21. ágúst seinasta sumars er lokið og kemur fram í tilkynningu frá embættinu að rannsóknin hafi leitt í ljós að árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola á Blönduósi og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu, með sjö haglaskot meðferðis.

Í tilkynningu lögreglunnar, sem birt var á Facebooksíðu embættisins segir að árásarmaðurinn hafi séð að gestir voru á heimilinu, farið út úr húsinu og húsráðandi haldið á eftir honum. „Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði alvarlega. Árásarmaðurinn fór þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráðanda í höfuð þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis.

Rannsókn hefur leitt í ljós að húsráðandi náði tökum á árásarmanninum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásarmannsins en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasa. Átökin enduðu á þann veg að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.

Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssumanns inni í húsinu kl. 05.27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni.

Rannsókn hefur ekki leitt í ljós að eitthvað eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að árásarmaðurinn mætti vopnaður á heimili árásarþola. Hann var einn að verki, allsgáður og hafði átt vinsamleg og virk samskipti við árásarþola fyrir árásina.

Tilkynnt var um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þann 27.07.2022 þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum. Árásarmaðurinn afhenti lögreglu þau skotvopn sem voru skráð á hann og leitaði aðstoðar heilbrigðiskerfis. Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var kominn aftur á Blönduós 12.08.2022. Við rannsókn á skotárásinni kom í ljós að árásarmaðurinn hafði tvisvar sinnum verið í garði við hús árásarþola í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.

Rannsóknin á skotvopninu hefur leitt í ljós að haglabyssan var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota árið 2008. Þrjár haglabyssur voru enn skráðar á fyrirtækið; byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja byssan Maveric M-88 haglabyssa sem er ófundin.“

Málið var afhent embætti héraðssaksóknara til ákvörðunar í gær og segir ennfremur í tilkynningu lögreglunnar að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra veiti ekki frekari upplýsingar um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir