Prýðilegur apríl framundan, segja Dalbæingar
Veðurklúbbur Dalbæjar fundaði þann 5. apríl 2023 en þar voru mætt þau Haukur Haraldsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Magnús Gunnlaugsson, Ragnhildur Von Weisshappel, Kristján Loftur Jónsson og Þóra Jóna Finnsdóttir. Spámenn telja að apríl komi með meira vor norður í land.
Auk veðurspámanna mætti ekki ómerkari einstaklingur en sjálfur Messi með fylgdarliði á fundinn sem að sjálfsögðu fékk klapp frá fundarmönnum sem glöddumst yfir þessum góðu gestum.
Kasper, eigandi Messi, heldur á hafrinum fyrir Þóru
„Samkvæmt tunglkomum tengdum apríl og trú okkar á að lægðarennur undanfarinna mánaða séu eitthvað að róa sig þá verða líklega ríkjandi austlægar áttir fyrrihluta apríl en suðvestlægar seinnihluta. Gaman er að minnast á að mars mánuður stóðst allar okkar væntingar, eins og reyndar nánast allir aðrir mánuðir.
Þá höfum við trú á að apríl komi með meira vor hingað norður. Þrátt fyrir það eiga eftir að koma nokkrir snjódagar með hléum á stórDalvíkursvæðinu um miðjan apríl en þeir endast mjög stutt.
Sem sagt, prýðilegur apríl framundan hérna hjá okkur, en eins og við nefndum í síðustu fundargerð þá getum við því miður ekki gert ráð fyrir sömu veðurgæðum á öðrum landshlutum.“
Þar sem Veðurklúbbs félagar þurfa ekki alltaf að vera hundrað prósent sammála þá fannst þeim við hæfi að leyfa eftirfarandi vísu Páls Ólafssonar og limru hirðskálds veðurklúbbsins, Bjór, að fylgja með:
Samkomulagið á Presthólum
Hér er rifist hvíldarlaust
svo hófi engu nemur,
vetur, sumar, vor og haust
– og verst ef einhver kemur.
Höf. Páll Ólafsson
Haukur er ágætis kall
Danni við drauma er snjall,
en Berg skulum varast
og forð´okkur snarast
því úr honum vitleysan vall.
Höf. Bjór.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.