Óskað eftir tilnefningum fyrir landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins
Matvælaráðherra veitir landbúnaðarverðlaun árlega í tengslum við Búnaðarþing og því óskar úthlutunarnefnd á vegum matvælaráðuneytisins eftir tilnefningum um bændabýli, önnur landbúnaðarfyrirtæki eða félög sem talin eru hafa verið á einhvern hátt til fyrirmyndar í íslenskum landbúnaði á næstliðnu ári.
Á heimasíðu Stjórnarráðsins segir að með tilnefningum skuli stutt greinargerð fylgja þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið allt að þrír og mun úthlutunarnefndin velja verðlaunahafa.
„Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga í starfsháttum eða annars árangurs sem getur verið öðrum fyrirmynd í landbúnaði svo sem á sviði umhverfisstjórnunar, loftslagsmála, ræktunarstarfs eða annarra þátta í starfseminni,“ segir í tilkynningu matvælaráðuneytissins.
Tillögur skulu berast eigi síðar en 1. mars 2023, merktar „Landbúnaðarverðlaun“ á netfangið mar@mar.is. Ráðherra landbúnaðarmála veitti landbúnaðarverðlaun fyrst 1997 og þau hafa verið veitt flest ár síðan eða alls í 24 skipti.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.