Nýtt listaverk á Sauðárkróki

Listafólkið sem sá um hönnun og gerð listaverksins. Mynd af Facebook-síðu Skagafjarðar.
Listafólkið sem sá um hönnun og gerð listaverksins. Mynd af Facebook-síðu Skagafjarðar.

Eins og glöggir íbúar hafa eflaust tekið eftir hefur nýju listaverki verið komið fyrir á Sauðárkróki. Tilkoma listaverksins er sú að Markaðsstofa Norðurlands, ásamt Ferðamálasamtökum Norðurlands vestra fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra fyrir því að setja upp listaverk á Norðurstrandarleið.

Úr varð að gerð voru þrjú listaverk, eitt sem sett var niður á Sauðárkróki, eitt á Hvammstanga og eitt á Skagaströnd. Óskað var eftir innblæstri frá sveitarfélögunum um hvað verkin ættu að endurspegla og þótti hesturinn vel við hæfi í Skagafirði. Listafólkið DYVYNA Decor sá um hönnun og gerð listaverkanna en þau eru listamenn frá Úkraínu, búsett á Íslandi, segir á Facebook-síðu Skagafjarðar. 

Verkinu hefur verið komið fyrir í norðurenda bæjarins, við Eyrarveg, a.m.k. til að byrja með, en þar liggur m.a. leiðin um Norðurstrandarleið. Til greina kemur að setja verkið á hærri undirstöður og jafnvel finna því nýjan stað.

Sveitarfélagið Skagafjörður þakkar Markaðsstofu Norðurlands og Ferðamálasamtökum Norðurlands vestra fyrir frumkvæðið að verkefninu og þetta skemmtilega listaverk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir