Nýnot fyrir gamlar íslenskar lopapeysur er viðfangsefni hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar 2023

Hin árlega Prjónagleði verður haldin á Blönduósi 9. – 11. júní 2023 og er að venju blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. Að þessu sinni gengur samkeppnin út að að endurvinna íslenska lopapeysu og nota hana sem grunnefniðvið í nýja nothæfa flík.

Íslensku lopapeysurnar standa alltaf fyrir sínu, en þegar þær slitna eða eru ekki lengur nothæfar af einhverjum orsökum geta þær orðið spennandi efniviður í nýja hönnun og öðruvísi flík.

Nú reynir á hugmyndaauðgi og verkkunnáttu þátttakenda til þess að skapa nýtt úr notuðu. Reglur keppninnar og upplýsingar um skil má nálgast á heimasíðu Textílmiðstöðvar Íslands. Dómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2023, þar sem verðlaun verða afhent.

Styrktaraðilar keppninnar eru Ístex, Tundra, VatnsnesYarn og Rúnalist, sem gefa glæsileg verðlaun. Verkin sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur.
Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir svana@textilmidstod.is og þær má einnig finna á www.textilmidstod.is undir flipanum Prjónagleði.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir