Matvælaráðherra setur af stað átaksverkefni vegna brottkasts

Mynd af stjornarradid.is/Golli
Mynd af stjornarradid.is/Golli

Að beiðni Fiskistofu hefur Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, samþykkt styrk til að gera kerfisbundið mat á brottkasti á Íslandsmiðum. Hlutverk Fiskistofu er meðal annars að gæta að ábyrgri nýtingu sjávarauðlindarinnar. Þetta kemur fram á heimasíðu Stjórnarráðsins.

Þar segir að Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), hafi gagnrýnt að takmörkuð gögn liggi fyrir um hversu miklum afla sé hent á Íslandsmiðum. Stofnunin áætlar að brottkast hafi verið 10,8% af alheimsafla árin 2010 til 2014. Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa átt í samstarfi um sýnatökur vegna stærðartengds brottkasts síðan árið 2001 og benda niðurstöður til að brottkast sé um 3-5%.

Í úttekt sem Ríkisendurskoðun gerði árið 2018 á starfsemi Fiskistofu kom m.a. fram að eftirlit stofnunarinnar með brottkasti væri veikburða og ómarkvisst og raunverulegur árangur þess óljós þar sem hvorki liggi fyrir skýr árangursmarkmið eða árangursmælikvarðar. Ríkisendurskoðun benti jafnframt á að Hafrannsóknastofnun hafi ekki rannsakað tegundaháð brottkast í rúman áratug og að auki hafi gagnasöfnun um lengdarháð brottkast dregist saman undanfarin ár. Einnig hefur eftirlit með brottkasti verið takmarkað og því erfitt að meta umfang þess.

Fiskistofa brást við gagnrýni FAO og Ríkisendurskoðunar og hóf eftirlit með drónum árið 2021. Við það fjölgaði brottkastsmálum ört eða úr u.þ.b. 10 málum á ári í 142 mál fyrir lok nóvember 2021.

„Það er mikilvægt að eftirlit með íslenskum sjávarútvegi verði leiðandi á heimsvísu og að áfram verði litið til Íslands sem fyrirmyndar hvað varðar umgengni um auðlindina,“ segir matvælaráðherra en nánar má lesa um verkefnið HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir