Leitað að meira af heitu vatni við Reyki
Nú í byrjun vikunnar hófst borun fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar á fyrstu af fjórum rannsóknarholum við Reyki, skammt frá Húnavöllum. Farið er í verkefnið til að finna meira heitt vatn fyrir veituna en afkastageta núverandi svæðis er að verða fullnýtt. Fram kemur í frétt á síðu RARIK að holurnar eru staðsettar að tillögu ÍSOR austan og vestan við núverandi vinnslusvæði í þeim tilgangi að leggja mat á stærð svæðisins, rannsaka hvort mögulega megi finna meira heitt vatn utan við núverandi vinnslusvæði og til að finna hentuga staðsetningu fyrir vinnsluholu, sem gert er ráð fyrir að boruð verði í framhaldinu.
„Verktaki við borunina er Finnur ehf. á Akureyri en það fyrirtæki hefur nýlega flutt inn nýjan öflugan beltabor sem hentar vel í umrætt verk. Ummerki á landi ættu því að vera í lágmarki, auk þess sem að nauðsynleg loftpressa er höfð á vörubíl sem getur í þessu verkefni staðið á vegslóðum sem þegar eru til staðar og þaðan lagðar loftslöngur að bornum,“ segir í fréttinni.
Ætlunin mun vera að bora fjórar rannsóknarholur, allt að 500 m djúpar, og út frá þeim gögnum sem fást úr holunum verður ný vinnsluhola staðsett.
Heimid: RARIK.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.